Færsluflokkur: Bloggar
12.12.2009 | 17:40
Er ritstjóri Morgunblaðsins sömu skoðunar?
Innrásin í Írak réttlætanleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2009 | 07:28
Hárrétt ákvörðun hjá Árna Finnssyni
Þetta er hárrétt hjá Árna Finnssyni vegna þess að heildarsýnina vantar. Álit skipulagsstofnunar frá í gær og úrskurður umhverfisráðuneytis frá 2008 byggja á kolröngum forsendum. Þar er gengið út frá því að álverið hafi 250.000 tonna framleiðslugetu. Þetta úrelt. Þetta eru upplýsingar gærdagsins. Það hefur margoft komið fram að eigandi fyrirhugaðs álvers stefnir nú á 360.000 tonna framleiðslugetu og ENGINN veit hvaðan orkan kemur sem á að knýja viðbótina. Það byggist allt á getgátum.
Kæra ákvörðun um Suðvesturlínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2009 | 08:29
Nei, nei, uppreisnin varð ekki til þess!
Enn tekst blaðamönnum Moggans að koma á óvart með fákunnáttu sinni. Í fréttinni er orsök og afleiðingu snúið við.
Uppreisnin varð EKKI til þess að íbúar gettósins voru sendir í útrýmingarbúðir heldur gerðu þeir uppreisn VEGNA þess að verið var að tæma gettóið og flytja íbúana í útrýmingarbúðir. Þarna er mikill munur á.
Síðasti uppreisnarleiðtoginn úr gettóinu í Varsjá látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.7.2009 | 08:54
Hvar vinnur Ágúst F. Hafberg?
Segir upplýsingar um arðsemi villandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2009 | 13:28
Var Jón Arason hálshöggvinn...
...eða var hann ekki bara beheddaður? Ég meina afhöfðaður?
Alltaf er þessi fjandans íslenska að þvælast fyrir okkur á Mogganum!
Fimm afhöfðaðir í Sádí-Arabíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.4.2009 | 20:04
Það er nauðsynlegt að lesa gögnin nákvæmlega sem vitnað er í
Í fréttinni segir:
Samtals námu styrkir þeirra fyrirtækja sem styrktu Sjálfstæðisflokkinn um meira en eina milljón 81 milljón króna á árinu 2006. Sambærileg tala fyrir Samfylkingu er 36 milljónir króna og 23,5 milljónir fyrir Framsóknarflokkinn. Ekki kemur fram með skýrum hætti hversu mikið fyrirtæki styrktu VG, en reikningar flokksins hafa þó verið birtir á heimasíðu flokksins undanfarin ár.
Er þetta nú alveg rétt? Á heimasíðu VG má finna ársreikning fyrir 2006. Þar segir á bls. 3:
Í einu tilfella fór styrkur umfram 500 þús.kr. viðmiðunarmörk. Um er að ræða styrk frá Samvinnutryggingum að fjárhæð kr. ein milljón.
Er þetta ekki nógu skýrt fyrir blaðamann Morgunblaðsins? Samanburður hans gengur út á að bera saman fyrirtækjastyrki sem voru yfir eina milljón króna í tilfelli Sjálfstæðisflokksins og ein milljón og hærri í tilfelli Samfylkingar og Framsóknar. Þessi samanburður er augljóslega ekki alveg sanngjarn vegna þess að ekki eru taldir upp styrkir til Sjálfstæðisflokksins sem voru nákvæmlega ein milljón. Látum það vera, en talan sem blaðamaðurinn var að leita í ársreikningi VG er sem sagt ein milljón króna.
Fengu meiri styrki árið 2006 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |